Friday, February 6, 2009

Krakkar og unglingar í Loga ! Takið eftir


Að þessu sinni hefur okkur verið boðið að taka þátt í sýningunni “Æskan og hesturinn” sem haldin verður í mars næstkomandi. Sett verður saman sýningaratriði frá Loga, þar sem flestir krakkar eða unglingar gætu tekið þátt. Ekki er skylda að hafa hest því ætlunin er að finna öllum hlutverk í atriðinu okkar burtséð frá hvort viðkomandi sé á hestbaki eða ekki. Fyrir yngstu krakkana er í boði að taka þátt í grímureiðinn sem hefur verið mjög vinsæl. Við hvetjum alla sem hafa áhuga að mæta upp í skóla mánudagskvöldið 9. febrúar kl.20.30 til skrafs og ráðagerða og endilega taka foreldra með.

Æskulýðsnefndin