Wednesday, February 25, 2009

Æfingar fyrir æskan og hesturinn

Æfingar fyrir sýninguna Æskan og hesturinn eru komnar vel á stað. Næsta æfing fer fram í íþróttahúsinu föstudaginn 27. febrúar kl. 13.00 -15.00. Þetta verður seinasta æfingin í íþróttahúsinu, næst förum við í reiðhöllina að Flúðum. Sú dagsetning verður auglýst síðar.

Sunday, February 15, 2009

Æfingar fyrir æskan og hesturinn

Fyrsta æfing fyrir æskan og hesturinn fer fram í íþróttahúsinu á þriðjudaginn 17. feb. næstkomandi kl. 15.00-16.30

Friday, February 6, 2009

Krakkar og unglingar í Loga ! Takið eftir


Að þessu sinni hefur okkur verið boðið að taka þátt í sýningunni “Æskan og hesturinn” sem haldin verður í mars næstkomandi. Sett verður saman sýningaratriði frá Loga, þar sem flestir krakkar eða unglingar gætu tekið þátt. Ekki er skylda að hafa hest því ætlunin er að finna öllum hlutverk í atriðinu okkar burtséð frá hvort viðkomandi sé á hestbaki eða ekki. Fyrir yngstu krakkana er í boði að taka þátt í grímureiðinn sem hefur verið mjög vinsæl. Við hvetjum alla sem hafa áhuga að mæta upp í skóla mánudagskvöldið 9. febrúar kl.20.30 til skrafs og ráðagerða og endilega taka foreldra með.

Æskulýðsnefndin